Stærsta þýðingastofa landsins
Á einungis fimm árum hefur Skopos stækkað úr því að vera tveggja manna fyrirtæki yfir í að vera stærsta þýðingastofa landsins. Ástæðurnar fyrir því eru einfaldar:
- Við höfum á að skipa færum þýðendum með mikla reynslu.
- Við fylgjum alþjóðlegum gæðastöðlum.
- Við fjárfestum ávallt í nýjustu tækni og spörum viðskiptavinum þannig þýðingakostnað til lengri tíma.
- Við höfum búið til orðalista og hugtakagrunna fyrir yfir 140 viðskiptavini sem samanlagt innihalda yfir 100.000 sérfræðihugtök.
- Við lítum svo á að verki sé einungis lokið þegar viðskiptavinurinn er orðinn ánægður.
Meðal viðskiptavina okkar eru mörg af stærstu fyrirtækjum heims og flestir Íslendingar lesa daglega texta frá okkur.